Klæðning utandyra
Ómeðhöndlaður grámar viðurinn jafnt og fallega. Með viðarvörn og reglulegu viðhaldi heldur hann gullbrúna litnum.
Nánar um klæðningu utandyraPlanki / Klæðningar / Thermo-Ayous
Duffield Timber, viðarklæðning
Hitameðhöndlaður harðviður með jöfnum gullbrúnum lit. Kvistalaus, léttur og endingargóður, fyrir klæðningar utandyra og innandyra og saunur.
Silvercrow, London. Lóðrétt skuggarauf. Mynd: Duffield Timber
Sami viðurinn í þremur ólíkum hlutverkum. Meðferðin fer eftir því hvar hann er notaður.
Ómeðhöndlaður grámar viðurinn jafnt og fallega. Með viðarvörn og reglulegu viðhaldi heldur hann gullbrúna litnum.
Nánar um klæðningu utandyra
Veggja- og loftaklæðningar með hlýju, kyrrlátu yfirbragði. Mjög stöðugur viður í alls konar klæðningar.
Spyrja um klæðningar innandyra
Kvistalaus og hitnar lítið viðkomu. Hentar einstaklega vel fyrir saunur.
Borðin eru 18 mm þykk, nema DTC50 sem er 42 mm. Þekjan er sú breidd sem hvert borð nær yfir þegar það er komið upp. Allir prófílar fást ómeðhöndlaðir eða með hvaða meðhöndlun sem er: SiOO:X, Colourflex®, Chartex®, Teknoclad eða Burnblock® eldvörn. Einnig er hægt að blanda saman mörgum prófílum til að fá óreglulegt og líflegt útlit.
Nót og fjöður, V-rauf
Nót og fjöður, V-rauf
Lóðrétt skuggarauf, falin festing
Lóðrétt skuggarauf, falin festing
Lárétt skuggarauf
Lárétt skuggarauf
Rimlaklæðning (rainscreen), mjórri borð
Rimlaklæðning (rainscreen)
Lóðrétt, tvöföld skuggarauf
Lóðrétt, þreföld skuggarauf
Ferköntuð, opin borð. Blandaðar breiddir eftir pöntun
Djúp skuggarauf, tvískipt borð
Vantar þig annan prófíl eða sérsmíði? Spyrja um aðra prófíla
Verksmiðjumeðhöndlað hjá Duffield og tilbúið til uppsetningar. Veldu hvort viðurinn á að halda litnum, grána jafnt eða fá allt annað útlit.
Thermo-Ayous með Teknoclad Stone Grey, burstuðu yfirborði. Mynd: Duffield Timber
Chartex® á viðbyggingu við eldra hús, með náttúrulegu Thermo-Ayous í þakkantinum. Mynd: Duffield Timber
Allar meðhöndlanir fást í öllum prófílum. Spyrja um meðhöndlað efni
Sláðu inn flatarmálið og veldu prófíl. Við bætum 10% við fyrir afskurð.
Prófíll
Breidd borða
Lengdarmetrar með afföllum
258 lm
Prófíll
DTC47
Þekja
128 mm
Án affalla
235 lm
Áætlað verð
Verð eftir fyrirspurn
Endanlegt magn fer eftir gluggum, hurðum og lengdum. Við förum yfir það með þér í tilboðinu.
Ómeðhöndlaður grámar Thermo-Ayous í sólarljósi. Það hefur engin áhrif á endinguna, eingöngu útlitið. Viljir þú halda litnum þá þarf viðarvörn. Innandyra og í saunu helst liturinn að mestu.



Myndir: Duffield Timber
Deildu fermetrunum með þekju borðsins í metrum og bættu við um 10% fyrir afskurð. Reiknivélin hér að ofan gerir þetta fyrir þig.
Já, það er eitt algengasta efnið í saunur. Hafðu viðinn ómeðhöndlaðan, notaðu ryðfríar festingar og settu álfilmu og loftbil á bak við klæðninguna.
Ekki vegna endingar. Utandyra er meðhöndlun eingöngu til að halda gullbrúna litnum.
Eldur þarf súrefni til að lifa. Í Burnblock er náttúrulegum, eiturefnalausum og að fullu niðurbrjótanlegum efnum þrýst inn í viðinn í lofttæmdum þrýstitanki. Þegar viðurinn hitnar kolast yfirborðið og losar vatn, sem hindrar að súrefni nái að viðnum. Það dregur úr bruna og hægir á útbreiðslu eldsins.
Burnblock er flokkað samkvæmt staðlinum BS EN 13501-1 og inniheldur engin efni sem eru á REACH-lista Evrópusambandsins yfir sérstaklega varasöm efni (SVHC).
Já. Allt Thermo-Ayous sem við seljum frá Duffield Timber er FSC-vottað, svo viðurinn kemur úr skógum sem eru nytjaðir á ábyrgan hátt.
Afhendingartími getur verið allt að fjórar vikur frá pöntun. Við staðfestum tímann þegar pöntunin er gerð.
Silvercrow í Suður-London: íbúðarhús klædd FSC-vottuðu Thermo-Ayous með lóðréttri skuggarauf frá Duffield Timber.
Myndir: Duffield Timber