Planki / Klæðningar / Thermo-Ayous

Duffield Timber, viðarklæðning

Thermo-Ayous

Hitameðhöndlaður harðviður með jöfnum gullbrúnum lit. Kvistalaus, léttur og endingargóður, fyrir klæðningar utandyra og innandyra og saunur.

Kvistalaus Ending án viðhalds Léttur og þægilegur í uppsetningu
Hús klætt Thermo-Ayous með lóðréttri skuggarauf, séð að framan

Silvercrow, London. Lóðrétt skuggarauf. Mynd: Duffield Timber

Hvar á Thermo-Ayous heima?

Sami viðurinn í þremur ólíkum hlutverkum. Meðferðin fer eftir því hvar hann er notaður.

Horn á húsi klæddu Thermo-Ayous með palli

Klæðning utandyra

Ómeðhöndlaður grámar viðurinn jafnt og fallega. Með viðarvörn og reglulegu viðhaldi heldur hann gullbrúna litnum.

Nánar um klæðningu utandyra
Loftaklæðning úr Thermo-Ayous í veitingasal

Klæðningar innandyra

Veggja- og loftaklæðningar með hlýju, kyrrlátu yfirbragði. Mjög stöðugur viður í alls konar klæðningar.

Spyrja um klæðningar innandyra
Sauna klædd Thermo-Ayous með L-laga bekkjum og LED-lýsingu

Saunur

Kvistalaus og hitnar lítið viðkomu. Hentar einstaklega vel fyrir saunur.

Prófílar

Borðin eru 18 mm þykk, nema DTC50 sem er 42 mm. Þekjan er sú breidd sem hvert borð nær yfir þegar það er komið upp. Allir prófílar fást ómeðhöndlaðir eða með hvaða meðhöndlun sem er: SiOO:X, Colourflex®, Chartex®, Teknoclad eða Burnblock® eldvörn. Einnig er hægt að blanda saman mörgum prófílum til að fá óreglulegt og líflegt útlit.

Thermo-Ayous klæðning í DTC2 prófíl

DTC2

Nót og fjöður, V-rauf

Mál
18 × 94
Þekja
86 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn
Thermo-Ayous klæðning í DTC3 prófíl

DTC3

Nót og fjöður, V-rauf

Mál
18 × 144
Þekja
136 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn
Thermo-Ayous klæðning í DTC47 prófíl

DTC47

Lóðrétt, tvöföld skuggarauf

Mál
18 × 144
Þekja
128 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn
Thermo-Ayous klæðning í DTC48 prófíl

DTC48

Lóðrétt, þreföld skuggarauf

Mál
18 × 144
Þekja
128 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn
Thermo-Ayous klæðning í DTC49 prófíl, blandaðar breiddir

DTC49

Ferköntuð, opin borð. Blandaðar breiddir eftir pöntun

Mál
18 × 45 / 70 / 90 / 140
Þekja
45 / 70 / 90 / 140 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn
Thermo-Ayous klæðning í DTC50 prófíl, djúp skuggarauf

DTC50

Djúp skuggarauf, tvískipt borð

Mál
42 × 136
Þekja
108 mm
Lengdir
2,15–6,05 m
Verð
Verð eftir fyrirspurn

Vantar þig annan prófíl eða sérsmíði? Spyrja um aðra prófíla

Meðhöndlað Thermo-Ayous

Verksmiðjumeðhöndlað hjá Duffield og tilbúið til uppsetningar. Veldu hvort viðurinn á að halda litnum, grána jafnt eða fá allt annað útlit.

Thermo-Ayous með SiOO:X Original, slétt yfirborð, eftir að húðunin hefur náð fullum lit

SiOO:X Original

Glær viðarvörn byggð á kísiltækni sem tryggir jafna, náttúrulega veðrun. Í sólarljósi fer hún strax að verka. Breytingin sést innan nokkurra vikna og á 3–4 mánuðum fær viðurinn mjúkan, ljósan og jafnan lit.

Glær, slétt eða burstað yfirborð. Fæst á öllum prófílum

Spyrja um SiOO:X
Thermo-Ayous með Colourflex Natural, nýborið

Colourflex® Natural

Djúpsmjúgandi viðarbæs sem fellur að lit og æðamynstri viðarins. Matt áferð sem myndar ekki filmu á yfirborðinu, með UV-vörn sem heldur náttúrulega litnum.

Náttúrulegur viðarlitur, matt. Fæst á öllum prófílum

Spyrja um Colourflex
Thermo-Ayous með Chartex, kolsvart burstað yfirborð

Chartex®

Sterkari útgáfa af brenndum við. Æðarnar eru burstaðar fram með vírbursta og viðurinn síðan bæsaður kolsvartur. Gefur kraftmikla áferð og betri endingu og útlit en hefðbundin brennsla.

Kolsvart, burstað yfirborð. Fæst á öllum prófílum

Spyrja um Chartex
Thermo-Ayous með Teknoclad Concrete Grey húðun

Teknoclad

Veðurþolin húðun sem gefur klæðningunni jafnt, grátt útlit frá fyrsta degi. Undir henni grámar viðurinn náttúrulega, svo þegar húðunin veðrast með tímanum verða engin sjáanleg skil.

Slétt eða burstað yfirborð. Fæst á öllum prófílum

Spyrja um Teknoclad
Einbýlishús klætt Thermo-Ayous með Burnblock eldvörn

Eldvörn

Burnblock®

Eldvarnarefni sem er þrýstigegndreypt inn í viðinn. Það hægir á íkveikju, takmarkar útbreiðslu loga og dregur úr reyk, án þess að breyta áferð eða útliti viðarins. Lyftir viðnum upp í Euroclass B, næsthæsta eldvarnarflokk í Evrópu.

Euroclass B-s1,d0. Fæst á öllum prófílum

Spyrja um Burnblock
Hús klætt Thermo-Ayous með Teknoclad Stone Grey, horft upp með horninu að þakskeggi Svalir og þakskegg klædd Thermo-Ayous með Teknoclad Stone Grey Gafl klæddur Thermo-Ayous með Teknoclad Stone Grey, með stórum gluggum

Thermo-Ayous með Teknoclad Stone Grey, burstuðu yfirborði. Mynd: Duffield Timber

Viðbygging við eldra múrsteinshús, klædd svörtu Chartex Thermo-Ayous Svört Chartex klæðning með náttúrulegu Thermo-Ayous í þakkanti

Chartex® á viðbyggingu við eldra hús, með náttúrulegu Thermo-Ayous í þakkantinum. Mynd: Duffield Timber

Allar meðhöndlanir fást í öllum prófílum. Spyrja um meðhöndlað efni

Hvað þarftu mikið?

Sláðu inn flatarmálið og veldu prófíl. Við bætum 10% við fyrir afskurð.

Prófíll

Lengdarmetrar með afföllum

258 lm

Prófíll

DTC47

Þekja

128 mm

Án affalla

235 lm

Áætlað verð

Verð eftir fyrirspurn

Bæta í körfu og fá tilboð

Endanlegt magn fer eftir gluggum, hurðum og lengdum. Við förum yfir það með þér í tilboðinu.

Svona breytist liturinn utandyra

Ómeðhöndlaður grámar Thermo-Ayous í sólarljósi. Það hefur engin áhrif á endinguna, eingöngu útlitið. Viljir þú halda litnum þá þarf viðarvörn. Innandyra og í saunu helst liturinn að mestu.

Ný, ómeðhöndluð Thermo-Ayous klæðning
Nýtt
Ómeðhöndlað Thermo-Ayous eftir þrjá mánuði utandyra
Eftir 3 mánuði
Ómeðhöndlað Thermo-Ayous eftir eitt ár utandyra
Eftir 1 ár

Myndir: Duffield Timber

Algengar spurningar

Hversu mikið efni þarf ég?

Deildu fermetrunum með þekju borðsins í metrum og bættu við um 10% fyrir afskurð. Reiknivélin hér að ofan gerir þetta fyrir þig.

Má nota Thermo-Ayous í saunu?

Já, það er eitt algengasta efnið í saunur. Hafðu viðinn ómeðhöndlaðan, notaðu ryðfríar festingar og settu álfilmu og loftbil á bak við klæðninguna.

Þarf að meðhöndla viðinn?

Ekki vegna endingar. Utandyra er meðhöndlun eingöngu til að halda gullbrúna litnum.

Hvernig virkar Burnblock® eldvörnin?

Eldur þarf súrefni til að lifa. Í Burnblock er náttúrulegum, eiturefnalausum og að fullu niðurbrjótanlegum efnum þrýst inn í viðinn í lofttæmdum þrýstitanki. Þegar viðurinn hitnar kolast yfirborðið og losar vatn, sem hindrar að súrefni nái að viðnum. Það dregur úr bruna og hægir á útbreiðslu eldsins.

Burnblock er flokkað samkvæmt staðlinum BS EN 13501-1 og inniheldur engin efni sem eru á REACH-lista Evrópusambandsins yfir sérstaklega varasöm efni (SVHC).

Er hægt að fá FSC-vottað efni?

Já. Allt Thermo-Ayous sem við seljum frá Duffield Timber er FSC-vottað, svo viðurinn kemur úr skógum sem eru nytjaðir á ábyrgan hátt.

Hver er afhendingartíminn?

Afhendingartími getur verið allt að fjórar vikur frá pöntun. Við staðfestum tímann þegar pöntunin er gerð.

Verkefni

Silvercrow í Suður-London: íbúðarhús klædd FSC-vottuðu Thermo-Ayous með lóðréttri skuggarauf frá Duffield Timber.

Tvö hús klædd Thermo-Ayous með palli á milli
Hús klædd Thermo-Ayous innan um tré Horn á húsi klæddu Thermo-Ayous

Myndir: Duffield Timber

Sjáðu efnið með eigin augum

Prufur af öllum prófílum í sýningarsalnum. Bókaðu tíma og við förum yfir verkefnið með þér.

Planki Parket ehf.

Dalvegi 16b, 201 Kópavogur

821 5880

[email protected]

Virka daga kl. 10–16, annars eftir samkomulagi

Við aðstoðum þig

Hafðu samband

Segðu okkur frá verkefninu þínu eða spurðu um parketið. Við svörum þér eins fljótt og við getum.

Staðfestu að þú sért manneskja áður en þú sendir.

Þú getur líka skrifað á [email protected] eða hringt í 821 5880.