Planki / Accoya® / Burnblock® eldvörn

Meðhöndlað Accoya®

Burnblock® eldvörn

Eldvarið Accoya sem heldur náttúrulegri áferð og útliti viðarins. Viðurinn nær Euroclass B, næsthæsta eldvarnarflokki í Evrópu.

Euroclass B-s1,d0 / B-s2,d0

Lóðrétt Accoya klæðning á efri hæð byggingar, undir dökkum þakkanti
Accoya með Burnblock eldvörn. Mynd: Duffield Timber

Hvað gerir Burnblock?

Hægir á íkveikju

Viðurinn er lengur að taka við sér þegar hann kemst í snertingu við eld.

Takmarkar útbreiðslu

Eldurinn breiðist hægar yfir klæðninguna og gefur meiri tíma.

Dregur úr reyk

Minni reykmyndun í bruna, sem skiptir miklu fyrir öryggi fólks.

Sama útlit

Náttúruleg áferð og útlit viðarins haldast.

Svona virkar það

Eldur þarf súrefni til að lifa. Burnblock kemur í veg fyrir að súrefni nái að viðnum.

  1. 1

    Þrýst inn í viðinn

    Viðurinn er settur í lofttæmdan þrýstitank, þar sem eldvarnarefnunum er þrýst djúpt inn í hann.

  2. 2

    Kolast í hita

    Þegar viðurinn hitnar myndar yfirborðið kolalag og losar vatn.

  3. 3

    Súrefnið lokast úti

    Kolalagið og vatnið hindra að súrefni nái að viðnum, sem dregur úr bruna og hægir á útbreiðslu eldsins.

Hvað þýðir flokkurinn?

Eldvarnarflokkun byggingarefna í Evrópu fer eftir staðlinum EN 13501-1. Flokkurinn segir til um þrjú atriði. Accoya með Burnblock er flokkað B-s1,d0 eða B-s2,d0, prófað á 19 mm þykkum borðum með 40 mm loftræstu bili.

B
Brunahegðun. Næsthæsti flokkur á skalanum A1 til F, þar sem A-flokkarnir ná yfir óbrennanleg eða nær óbrennanleg efni eins og stein og gler.
s1/s2
Reykur. Lítil (s1) eða miðlungs (s2) reykmyndun, á skalanum s1–s3.
d0
Logandi dropar. Engir logandi dropar eða agnir falla frá efninu í bruna.

Öruggt fyrir fólk og umhverfi

  • Náttúruleg, eiturefnalaus og að fullu niðurbrjótanleg efni.
  • Svansvottað (Nordic Swan Ecolabel).
  • Engin efni á REACH-lista Evrópusambandsins yfir sérstaklega varasöm efni (SVHC).
  • Flokkað samkvæmt BS EN 13501-1.
  • FSC®-vottað Accoya frá Duffield Timber.

Hvar hentar Burnblock?

  • Utanhússklæðningar og framhliðar
  • Innanhússklæðningar á veggi og loft
  • Áberandi veggir og viðarfletir í opinberum rýmum
  • Byggingar þar sem gerðar eru auknar kröfur um eldvarnir

Kröfur um eldvarnarflokk fara eftir byggingunni. Hönnuður eða byggingarfulltrúi staðfestir hvaða flokkur á við.

Fáðu tilboð í eldvarið Accoya

Segðu okkur fermetrafjölda og prófíl, og við sendum tilboð. Afhendingartími er 4–6 vikur frá pöntun.

Við aðstoðum þig

Hafðu samband

Segðu okkur frá verkefninu þínu eða spurðu um parketið. Við svörum þér eins fljótt og við getum.

Staðfestu að þú sért manneskja áður en þú sendir.

Þú getur líka skrifað á [email protected] eða hringt í 821 5880.