Planki / Thermo-Nordic Pine / Chartex®

Meðhöndlað Thermo-Nordic Pine

Chartex®

Sterkari útgáfa af brenndum við. Æðarnar eru vírburstaðar fram til að skapa áferð og sjónræn áhrif, og viðurinn síðan bæsaður kolsvartur. Aðferðin gefur betra útlit og meiri endingu en hefðbundin brennsla.

Kolsvart, burstað

Thermo-Nordic Pine með Chartex, kolsvört vírburstuð klæðning þar sem æðar og kvistir sjást
Chartex®

Svona er Chartex unnið

Útlitið minnir á hefðbundinn brenndan við, en aðferðin gefur betri gæði og endingu.

  1. 1

    Vírburstun

    Æðarnar í viðnum eru burstaðar fram með vírbursta til að skapa áferð.

  2. 2

    Kolsvart bæs

    Viðurinn er síðan bæsaður með kolsvörtu viðarbæsi.

  3. 3

    Útkoman

    Djúp, svört áferð með sýnilegum æðum, sem endist betur en hefðbundin brennsla.

Fáanlegir prófílar

Chartex® fæst á öllum prófílum okkar í Thermo-Nordic Pine.

DTC2

V-rauf · 18 × 94 mm

DTC3

V-rauf, breiðari · 18 × 140 mm

DTC14

Lóðrétt skuggarauf · 18 × 94 mm

DTC15

Lóðrétt skuggarauf, breiðari · 18 × 142 mm

DTC18

Lárétt skuggarauf · 18 × 94 mm

DTC19

Lárétt skuggarauf, breiðari · 18 × 140 mm

DTC27

Opin regnskjólsklæðning · 18 × 94 mm

DTC28

Opin regnskjól, breiðari · 18 × 140 mm

DTC49

Ferköntuð, opin borð · 18 mm, ýmsar breiddir

DTC50

Þykk og þunn borð · 42 × 136 mm

Sjá alla prófíla og reikna magn

Chartex í notkun

Kolsvart Chartex á efri hæðinni, blandað með hlýjum Western Red Cedar í inndregnum flötum, loftum og súlum. Andstæðan milli svarta og rauðbrúna viðarins gefur húsinu sterkan svip.

Tveggja hæða hús, klætt kolsvörtu Chartex með inndregnum svölum og veggjum úr Western Red Cedar
Chartex umlykur inndregnar svalir úr Western Red Cedar
Bílskúrsinngangur með Western Red Cedar í lofti og veggjum, umlukinn kolsvartri Chartex klæðningu
Western Red Cedar í inngangi bílskúrs
Yfirbyggð verönd með lofti og súlum úr Western Red Cedar undir kolsvartri Chartex klæðningu
Yfirbyggð verönd með loft og súlur úr Western Red Cedar

Myndir: Duffield Timber

Gott að vita

  • Thermo-Nordic Pine frá Duffield Timber, PEFC-vottuð fura frá Finnlandi.
  • Verksmiðjumeðhöndlað og tilbúið til uppsetningar.
  • Fæst á öllum prófílum.

Hentar vel ef

  • þú vilt dökkt, nútímalegt útlit
  • þú vilt áferð brennds viðar á hagkvæmara verði
  • þér líkar að kvistir og æðar sjáist í gegnum svarta litinn
  • þú vilt skapa andstæðu við ljósari efni, t.d. múrstein eða náttúrulega Thermo-Nordic Pine

Fáðu tilboð í Chartex Thermo-Nordic Pine

Segðu okkur fermetrafjölda og prófíl, og við sendum tilboð. Framboð, mál og afhending eru staðfest fyrir hvert verkefni.

Við aðstoðum þig

Hafðu samband

Segðu okkur frá verkefninu þínu eða spurðu um parketið. Við svörum þér eins fljótt og við getum.

Staðfestu að þú sért manneskja áður en þú sendir.

Þú getur líka skrifað á [email protected] eða hringt í 821 5880.